Skip to content

Stofa Jennýjar Karlsdóttur

Helstu markmið stofu Jennýjar Karlsdóttur eru að veita áhuga-, fræða- og listafólki aðgang að 2500 textílgripum sem Jenný gaf Safnasafninu vorið 2023 svo það geti rannsakað og skrifað um þá og notað í kennslu. Heimasíðu verður komið upp þar sem fólk getur skoðað gripina, keypt mynstur og nýtt sér ýmiss konar verklag og þekkingu. Í nafni stofu Jennýjar verða kynningar og fræðsla fyrir hópa þar sem fjallað verður um efnisþætti og útsaumsaðferðir. Gripir úr gjöf Jennýjar verða sýndir jafnt og þétt á næstu árum.

Á nýársdag 2024 var Jenný Karlsdóttir sæmd riddarakrossi fálkaorðunnar fyrir framlag til varðveislu íslenskrar alþýðu- og handverksmenningar.

Sýningar

2025 Hvítsaumur
2024 Sýnishorn
2024 Faldbúningur
2023 Puntuhandklæði
2023 Faldbúningur

Exit mobile version