Puntuhandklæði
Jenný Karlsdóttir ánafnaði Safnasafninu veigamikilli textílgjöf vorið 2023 og er fyrirhugað að kynna gjöf hennar á næstu árum með röð sýninga og fróðlegum fyrirlestrum. Fyrsta sýningin á textílverkum og hannyrðum úr safni Jennýjar Karlsdóttur eru svokölluð puntuhandklæði sem stillt hefur verið upp í verslunarrýminu og svokallaðri Suðurstofu inn af versluninni. Húsfreyjur saumuðu puntuhandklæði út til heimilisprýði og hengdu upp í eldhúsi til að hylja óhrein viskustykki.