Skip to content

Munir og list frá Grænlandi

Safnasafnið varðveitir sérstakt safn grænlenskra gripa og listaverka sem veita innsýn í fjölbreytta sköpun, handverk og menningarhefðir Grænlands. Í safninu eru yfir 300 gripir, skráðir á 324 safnnúmer, og spannar það fjölbreytt efni, allt frá útskurði í bein, horn, við og stein til perlusaums og nytjahluta.

Safnið byggir á gjöf úr safni Valtýs Péturssonar listmálara (1919–1988) og Herdísi Vigfúsdóttur kennara (1925–2011), sem söfnuðu gripunum á árunum 1963-1983 meðan þau dvöldu á Grænlandi. Í upphaflegu gjöfinni voru meðal annars yfir eitt hundrað túpilakar úr ýmsum efnum, auk fjölda annarra gripa á borð við bátslíkön, grímur og verkfæri. Síðar bættust við perlusaumaðir munir sem áður höfðu verið varðveittir annars staðar.

Í safninu má meðal annars sjá túpilaka og aðrar útskornar verur sem tengjast bæði gömlum sögnum og síbreytilegum túlkunum listafólks. Gripirnir endurspegla fjölbreyttar aðferðir og efnisnotkun þar sem andstæður milli þunga og léttleika, fínleika og hráefnis skapa sterka heild. Útskurður í bein og tennur einkennist oft af fíngerðu línuspili og nákvæmri vinnslu, á meðan steinverk eru þéttari og yfir þeim hvílir ákveðin ró. Perlusaumurinn bætir við lit og mynstri og tengist þróun grænlenska þjóðbúningsins.

Verk eftir bæði nafngreinda og óþekkta höfunda gefa breiða mynd af handverki og listsköpun á ólíkum tímum og svæðum. Safnið er varðveitt sem hluti af safneign Safnasafnsins og endurspeglar áhuga safnsins á fjölbreyttri menningarlegri tjáningu, efnisnotkun og sköpun utan hefðbundinna flokka myndlistar.

1 / 15

Sýningar

Exit mobile version