Skip to content

Innan garðs og utan – Málþing

Þann 14. mars 2024 héldu Safnasafnið og Nýlistasafnið, í samstarfi við Norræna húsið, málþing um söfnun á jaðrinum – umhverfi safna með sértæk markmið og söfnunargildi. Þingið var hugsað sem sjálfstætt framhald málþings sem Safnasafnið hélt árið 2018 í Þjóðminjasafninu og bar heitið Frá jaðri til miðju. Þá var lögð áhersla á þróun og stöðu alþýðulistar hér á landi. Strax í kjölfarið var ljóst að þörf er á að halda á lofti orðræðu tengdri listsköpun jaðarhópa og þeirra listamanna sem falla utan „stóru listasögunnar“, en einnig hvort og á hvaða hátt söfnunarstefna safna hér á landi tekur til hugmynda um margbreytileika, jafnrétti og jafnræði. Með málþinginu Innan garðs og utan er ætlunin að taka upp þessa þræði og leggja áherslu á söfnunarstefnu sem lýtur að verkum sem teljast til jaðarsins í samtímanum. 

Erindi fluttu

Margrét M. Norðdahl, myndlistarmaður, stofnandi Listvinnslunnar, í stjórn Listar án landamæra og áður í stjórn Safnasafnsins

Sigríður Regína Sigurþórsdóttir, safneignarfulltrúi Nýlistasafnsins

Elísabet Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Myndlistarmiðstöðvar og forstöðumaður Listasafns ASÍ

Oddný Eir Ævarsdóttir, heimspekingur, skáld og dagskrárgerðarkona

Pallborð

Auður Jörundsdóttir, forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar
Helga Lára þorsteinsdóttir, safnstjóri safnkosts RÚV og einn fulltrúa Safnaráðs
Sigurjón Baldvin Hafsteinsson, prófessor í safnafræðum í Háskóla Íslands
Ingibjörg Jóhannsdótttir, safnstjóri Listasafns Ísland
Jóhanna Ásgeirsdóttir, listrænn stjórnandi List án landamæra

Stjórnendur og spyrlar voru Sunna Ástþórsdóttir, formaður stjórnar Nýlistasafnsins og Unnar Örn Jónsson, myndlistarmaður og stjórnarmaður Safnasafnsins.

Exit mobile version