Skip to content

Hvítsaumur / Whitework

Ýmsar listakonur / Various artists

Hvítsaumur er yfirheiti yfir saumspor sem eru saumuð með hvítu garni á hvítt undirlag, oftast hör eða bómull. Uppruna sporanna má rekja til Frakklands, en vinsældir þeirra bárust hratt um Evrópu og þau urðu sértæk eftir löndum. Má þar nefna Feneyjasauminn, enska sauminn, danska Hedebo-sauminn og hinn norska Harðangurssaum. Til Íslands barst hvítsaumurinn þó ekki fyrr en í lok 19. aldar, þá frá Danmörku. Þegar húsmæðraskólarnir hófu göngu sína varð hvítsaumurinn vinsæll á meðal nemenda og barst hann með þeim um landið allt. Sýningin er sett upp til kynningar og fræðslu á hvítsaum úr eigu safnsins, vegna sérstæðis í verklagi og nákvæmra vinnubragða.

/

1 / 6

Suðurstofa / South Room 2025
Sýningargerð / Curator Bryndís Símonardóttir

Exit mobile version