Verslun Ásgeirs G. Gunnlaugssonar & Co / Textíldeild Safnasafnsins
Vefnaðarvöruverslun Ásgeirs G. Gunnlaugssonar & Co var í Austurstræti (síðar í Stórholti og Skipholti) í Reykjavík og í eigu sömu fjölskyldu allt frá 1907 til 2006. Þegar Verslun Ásgeirs G. Gunnlaugssonar & Co hætti, þá var hún líklega eina vefnaðarvöruverslunin í Reykjavík sem hafði verið rekin undir sama nafni í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi, eða í 99 ár samfleytt. Í dag eru innréttingarnar notaðar sem umgjörð um sýningar tengdar textíl, hannyrðum og handverkshefðum.
↓
Magnhildur Sigurðardóttir hóf söfnun sína á textíl löngu áður en þau Níels Hafstein stofnuðu Safnasafnið árið 1995 og hefur síðan bætt við eftir því sem aðstæður leyfa. Hún leitaði fanga víða, fyrst í Kolaportinu, síðan hjá Rauða krossinum og Hjálpræðishernum og öðrum sem selja notaða og endurnýtanlega gripi. Því miður reyndist sjaldan unnt að fá upplýsingar um höfunda þeirra þótt sérstaklega væri leitað eftir því hjá einstaklingum sem seldu úr dánarbúum, það var eins og fólk ætti erfitt með að gangast við því að láta gripi frá sér, handverk mömmu og ömmu, og sagðist ekki vita önnur deili á þeim en að þeir hefðu verið keyptir og notaðir á heimilinu.
Veturinn 2015-2016 fór fram rannsókn á Safnasafninu á fjölda verka í textíldeild safnsins sem þær Magnhildur og Bryndís Símonardóttir önnuðust með aðstoð Jennýjar Karlsdóttur. Þær höfðu til hliðsjónar skólavinnubækur, handbækur, yfirlitsrit og upplýsingar á netinu. Rannsóknin var birt með yfirlitssýningu á vefnaði og útsaumi þar sem nytjaþættinum var hafnað og listfengni höfundanna dregin fram – stólasessur og teppi, áklæði, dúkar og óhreinatausposar urðu að sjálfstæðum listaverkum, komið fyrir eins og málverkum og teikningum og gestum bent á þátt þeirra í þróunarsögu íslenskrar myndlistar með tilvísunum í eign Þjóðminjasafnsins, byggða- og minjasafna, en um leið látin uppi sú von að verk innan vévbanda þeirra fengju uppreisn æru og litið yrði á þau frá öðru sjónarhorni en nytjagildisins. Eins var gefin út sýnisbókin Hannyrðir, þar sem fjallað er um verk eftir ókunnar konur.
Vorið 2023 tók Safnasafnið við textílsafni Jennýar Karlsdóttur sem má lesa um hér.
↓
Sýningar
2025 Hvítsaumur