Viðburðir & samstarf 2025
↓
→ Námskeið 2025
22.01.25 – 12.02.25
NÁMSKEIÐ: HVÍTSAUMUR
Safnasafnið
Safnasafnið stendur fyrir spennandi námskeiði í vetur í hvítsaumi eða nánar tiltekið enskum og frönskum saum. Þáttakendum býðst að mæta í fjögur skipti og ljúka á þeim tíma við prufu. Allt efni verður í boði á staðnum.
Leiðbeinendur
Bryndís Símonardóttir & Jenný Karlsdóttir
→ Viðburðir 2025
09.05.25 kl. 9:30 – 10:30
OPNUN: 17 SORTIR
Safnasafnið, Gamli gróðurreiturinn
Þórgunnur Þórsdóttir, starfsmaður Safnasafnsins, hefur síðastliðnar vikur unnið með Valsárskóla að samstarfsverkefni ársins 2025 sem er unnið til heiðurs samstarfsverkefni sem Jenný Karlsdóttir fór af stað með á sínum tíma og markaði upphaf sýninga Valsárskóla og Safnasafnsins.
→ Viðburðir 2025
10.05.25 kl. 14:00 – 17:00
OPNUN: SUMARSÝNINGAR SAFNASAFNSINS
Safnasafnið
14:00 – Safnasafnið opnar
14:30 – Gjörningur / Huginn Þór Arason & Hrefna Lind Lárusdóttir
15:00 – Leiðsagnir um sýningar
→ Viðburðir 2025
→ Samstarf
07.06.25 kl. 16:00 – 18:00
OPNUN: SENDING FRÁ SVALBARÐSEYRI
Nýlistasafnið
Á sýningunni má finna lítið brot af þeim fjölbreytta safnkosti sem Magnhildur og Níels hafa safnað saman í gegnum árin, allt frá sínum fyrstu kynnum.
→ Viðburðir 2025
→ Samstarf
22.06.25 kl. 14:00 – 15:00
LEIÐSÖGN: SENDING FRÁ SVALBARÐSEYRI
Nýlistasafnið
Leiðsögn sýningarstjóranna Guðlaugar Míu og Unnars Arnar. Leiðsögnin fer fram á íslensku.
→ Viðburðir 2025
12.07.25 kl. 14:00
LEIÐSÖGN: RÖMM ER SÚ TAUG
Safnasafnið
Eiríkur G. Guðmundsson, sagnfræðingur og fyrrverandi þjóðskjalavörður, flytur erindi um Þorbjörgu Halldórsdóttur og verk hennar sem eru til sýnis í Austursal Safnasafnsins í ár.
→ Viðburðir 2025
→ Samstarf
20.07.25
LEIÐSÖGN: SENDING FRÁ SVALBARÐSEYRI
Nýlistasafnið
Leiðsögn sýningarstjóranna Oddu Júlíu og Joe Keys.
→ Verk úr safneign
28.08.25 – 09.11.25
ALGJÖRAR SKVÍSUR
Svava Skúladóttir, Hrefna Sigurðardóttir, Kiko Korriro, Hulda Vilhjálmsdóttir
Hafnarborg
Sýningin Algjörar skvísur býður gestum að kanna þemu sem tengjast mýkt, krafti og kvenlegri orku í samtímalist.
Sýningarstjórn Jasa Baka og Petra Hjartardóttir
→ Viðburðir 2025
29.08.25 kl. 13:30
LEIÐSÖGN: HVÍTSAUMUR
Safnasafnið
Bryndís Símonardóttir, sýningarstjóri sýningarinnar, leiðir gesti í gegnum verkin og segir frá uppruna saumsins, handverkinu sjálfu og þeirri sérstöðu sem felst í nákvæmum vinnubrögðum og fjölbreytileika hvítsaumsins.
→ Verk úr safneign
13.09.25 – 14.09.25
NORDIC TEXTILE TAKOVER
Hildur Hákonardóttir
Scandinavia House, NYC
A Nordic textile collaboration project co-curated by Ragna Froda (ISL/US), Director of New York Textile Month, and Emily Stoddart (CA), manager of exhibitions and community programs at Scandinavia House, New York.
→ Námskeið 2025
5.11.25 – 26.11.25
NÁMSKEIÐ: HVÍTSAUMUR
Safnasafnið
Safnasafnið stendur fyrir spennandi námskeiði í vetur í hvítsaumi. Þáttakendum býðst að mæta í fjögur skipti og ljúka á þeim tíma við prufu. Allt efni verður í boði á staðnum.
Leiðbeinandi
Bryndís Símonardóttir
→ Viðburðir 2025
→ Samstarf
5.12.25
HÁTÍÐARFYRIRLESTUR MYNDLISTARDEILDAR LHÍ
Listaháskóli Íslands
Unnar Örn og Þórgunnur Þórsdóttir, meðstjórnendur í stjórn Safnasafnsins, fara með áheyrendur í heimsókn í Safnasafnið. Í tilraunakenndri leiðsögn um undraheim safnsins munu Unnar og Þórgunnur veita innsýn í höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar.