Skip to content

Stefnumót / A Date

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir & Tómas Jónsson

Samsýning hjóna sem hverfist um langa ástar- og fjölskyldusögu, allt frá fyrsta fundi þeirra Þórunnar Elísabetar og Tómasar Jónssonar. Þórunn sýnir skúlptúra og textíl sem hún hefur safnað í áratugi og notar í verk sín. Tómas hefur alla tíð haldið myndræna skrá yfir samband þeirra. Sýningin er stefnumót listaverka pars sem á langan, samtvinnaðan og litríkan feril að baki og hafa komið víða við í skapandi geirum á Íslandi, myndlist, hönnun, kvikmyndagerð og í leikhúsi.

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sýnir textílverk úr stóru safni gripa sem hún var byrjuð að sanka að sér og halda utan um áður en hún átti fyrst stefnumót við Tómas. Grunnlitur þeirra er nær hvítu, úr borðdúkum og sængurfatnaði, en á hann eru lagðar ljósbleikar og bláar munnþurrkur, líka heklaðar glasamottur. Útsaumur er í smáum stíl, krosssaumur og flatsaumur. Litir eru frekar mildir og lausir endar svartir. Samsetning flatanna á grunnforminu myndar fagurfræðilega heild með ívafi skrautlegra tilvitnana sem vísa aftur í glæsta fortíð og snerta hugsanaþræði sem brúa bil á milli eldra notagildis og listar sem endurnýjar sig í sífellu. Auk textílverkanna sýnir Þórunn Elísabet skúlptúra sem í eru álftafjaðrir sem hún sótti til Álftafjarðar.

Tómas Jónsson, grafískur hönnuður og ljósmyndari, hefur frá upphafi kynna þeirra Þórunnar haldið myndræna skrá yfir líf þeirra gegnum linsur myndavéla sinna. Ekki aðeins með portrettmyndum af Þórunni og myndum af listaverkum hennar gegnum tíðina, heldur einnig af börnum þeirra, barnabörnum, fjölskyldu, vinum og umhverfinu. Hér eru sýnishorn af myndum hans með grafískum aðferðum. Tómas hefur gefið út tvær veglegar ljósmyndabækur þar sem Þórunn birtist í leikandi ljóma frá því að þau kynntust fyrir áratugum en jafnhliða myndir af listaverkum hennar og búningahönnun í leikhúsum.

/

Stigaloft / Landing 2026
Sýningargerð / Curator Níels Hafstein

Exit mobile version