Skip to content

Horft um öxl / Looking back

Jón Laxdal (1971-2021)

Jón hóf listferil sinn á sviði skáldskapar en eftir kynni af nýjum straumum í myndlist og fjölbreyttu listalífi í kringum Rauða húsið hafði myndlistin yfirhöndina. Tungumálið vék fyrir myndbyggingu og merking fyrir merkingarleysunni. Verk hans kalla gjarnan fram spurningar um virkni táknkerfa í hversdeginum, þar sem orð, myndir og hlutir eru færð úr sínu hefðbundna samhengi og merking þeirra verður óstöðug. Hlutir verða að spurningum og tákn að áferð. Með því beinir hann athygli áhorfandans að eiginleikum á borð við form og efniskennd. Í fyrstu beindist þessi nálgun einkum að tungumálinu, en í síðari verkum færðist áherslan yfir á hluti úr daglegu lífi og nærumhverfi.

Á sýningunni ber fyrir augu verk sem Jón vann undir lok ferils síns í bland við nokkur eldri. Hann vinnur með fundna hluti sem færast úr sínu fyrra samhengi og raðast á nýjan hátt. Kunnugleiki þessara hluta kitlar minninguna um það sem eitt sinn bjó í þeim, en um leið verður sú merking óviss svo form, efni og yfirborð taka yfir. Með þessari nálgun dregur hann fram falda möguleika hins hversdagslega og opnar fyrir ný tengsl sem kalla á endurskoðun skynjunar okkar á hlutum og merkingu þeirra. Verk Jóns einkennast af mikilli nákvæmni, ljóðrænu næmi og oft á tíðum hárfínni kímni.

Jón hafði sérstakt dálæti á versluninni Tiger á Glerártorgi og var þar tíður gestur. Þaðan eiga mörg verkanna rætur sínar sem svokölluð ready-made. Um er að ræða hluti sem vísa til tiltekinnar virkni úr hversdagslífinu án þess að vera raunverulega hagnýtir. Smækkaðar útgáfur af innkaupakerrum og verslunarpokum vísa til stærri fyrirmynda sinna og þar með til ákveðinna samfélagslegra kerfa. Í meðferð Jóns beinist athyglin hins vegar að grunnvirkni þeirra sem hlutir gerðir til að halda utan um aðra hluti. Með þessari nálgun dregur hann fram falda möguleika hins hversdagslega og opnar fyrir ný tengsl sem kalla á endurskoðun skynjunar okkar á hlutum og merkingu þeirra.

/

Miðrými / Middle Room 2026
Sýningargerð / Curator Aðalheiður S. Eysteinsdóttir