Skip to content

Aðgengi

Aðgengi fyrir hjólastóla er almennt gott á safninu og það er lyfta á milli hæða og skábraut, nema niður í vestursal, þangað niður liggja þrjár tröppur, það er vel sýnilegt inn af stigapalli. Það er auðfarið úr einum í annan. Það er friðsælt á safninu. Engin björt eða blikkandi ljós né hljóð úr myndbandsmiðlum hljóma. Ef myndbands- eða hljóðverk eru sýnd eruð þau í heyrnatólum. Bílaplanið er þakið möl en trépallar við innganginn og þröskuldur. Hægt er að tylla sér á báðum hæðum, bæði í anddyri, og svo í bókastofu uppi. Starfsfólk getur leiðbeint daufblindum og eða þeim sem þess óska um safnið. Það er ágætlega fært fyrir hjólastóla um garðinn, þar eru troðnir stígar.