Opnunartími 2026
17. maí – 04. október
10:00 – 17:00
↓
Staðsetning
Safnasafnið er staðsett á Svalbarðseyri sem er í um 10 mínútna aksturfjarlægð frá Akureyri.
Heimilisfang:
Safnasafnið
Svalbarðseyri
606 Akureyri
↓
Þjónusta
Boðið er upp á leiðsögn fyrir minni og stærri hópa gegn gjaldi. Hægt er að leigja afnot af sölum Safnasafnsins til funda, samkvæma og tónleika samkvæmt nánara samkomulagi. Safnasafnið veitir sértæka ráðgjöf um alþýðulist ef þess er óskað. Safnasafnið tekur að sér að flytja fyrirlestra um alþýðulist og rannsóknir sem farið hafa fram á vegum safnsins.
Safnasafnið lánar verk úr safneign tímabundið til annarra safna, til sérstakra sýninga eða til rannsókna samkvæmt nánara samkomulagi. Höfundur á ætíð rétt á því að fá verk sín lánuð á eigin sýningar. Lántakendur þurfa að uppfylla skilyrði safnsins um tryggingar og öryggismál.
Safnasafnið veitir fræðimönnum aðgengi að skráningu og heimildum samkvæmt nánara samkomulagi. Einnig er í boði fræðimannsíbúð, sjá nánari upplýsingar hér. Samkvæmt skipulagsskrá getur safnið tekið gjald fyrir veitta sérfræðiþjónustu, miðlun, lán á listaverkum og ljósmyndir af þeim, sérunnar skrár og úrtak tölvugagna.