Þvílíkasafnið / Such a Collection
Bjarni H. Þórarinsson (1947–2025)
Að loknu listnámi bjó Bjarni fyrst til verk í anda hugmyndalistar en markaði sér fljótt farveg sem kalla mætti óheft ímyndunarafl sem rann til margra átta með viðkomu í vísindalegum vinnubrögðum og heimspeki. Hann teiknaði þó fáeinar hefðbundnar myndir til hliðar við frjálsari útfærslur, nýyrðasmíði og tæmingu á möguleikum formgerða sem féllu betur að hugmyndaflugi hans. Í þessum rannsóknum fann Bjarni upp hugtök og hönnunartákn sem smám saman fengu aukið vægi og höfðu áhrif á endanlega útkomu verka hans.
Sýningin er tilraun til að setja upp nokkurn veginn rétta leið Vísirósanna í vinnsluferli Bjarna og fjölbreytilega þróun þeirra frá frumdráttum til fullmótaðra listaverka. Þess má geta að Safnasafnið hefur sýnt 25 Þróunarvíðróf hans og 36 af 90 Vísirósum sem Guðmundur Oddur Magnússon (1955–2026), grafískur hönnuður, litaði og þrykkti, og báðir undirrituðu. Sýningin er tileinkuð minningu þeirra.
Gunnar Þór Bjarnason og Hildur Þórðardóttir, börn Bjarna gáfu safninu þau verk sem hér eru til sýnis árið 2025. Gjöfin inniheldur meðal annars 700 Donnettur (ljósmyndaverk), 30 frumgerðir Vísirósa, 28 stórar tússteikningar og möppur með táknkerfum, orðaleikjum, veggspjöldum, úrklippum, ljósmyndum og sýnishornum.
/
After completing his studies, Bjarni H. Þórarinsson leaned towards Conceptual Art practice. However, he quickly forged his own path upon an unrestricted tide of ideas that flowed in many directions touching on philosophy and science. He made a few more conventional drawings along with the unconventional versions which were in tune with his imagination. In the process he created neologisms and exhausted possibilities of morphology. Bjarni invented concepts and designed symbols in this research that gradually gained importance for him, and influenced the total outcome of his art.
This exhibition is an attempt to show the path of development for Bjarni’s Visio Roses which is among his best-known works. The process stems from initial drafts to a fully formed body of artworks. It may be noted that the museum has exhibited 25 of his Alternative Wide Spectrum and 36 of the 90 Visio Roses, which graphic designer Guðmundur Oddur Magnússon (1955-2026) coloured and printed. The exhibition is dedicated to their memory.
Bjarni’s children, Gunnar Þór Bjarnason and Hildur Þórðardóttir made a large donation to Safnasafnið last year. Their donation includes 700 Donnets (photographic works), 30 prototypes of Vísio Roses, 28 large ink drawings and folders with symbol systems, word games, posters, clippings, photographs and samples.
Bjarti salur / Bright Room 2026
Sýningargerð / Curator Níels Hafstein
↓
