Skip to content

Hvítsaumsnámskeið

Safnasafnið stendur fyrir áhugaverðu námskeiði í hvítsaumi. Þátttakendum býðst að mæta í fjögur skipti og allt efni verður í boði á staðnum. 

Námskeiðið er hluti af safnfræðslu- og menningarmiðlunarhluta textíldeildar Safnasafnsins sem ber heiti Munstur og menning en nafnið er hluti víðamikilli gjöf sem Jenný Karlsdóttir gaf Safnasafninu vorið 2023.

Munstur og menning vinnur að því að gera sem mest af okkar fornu handverksmenningu aðgengilega nemendum, hönnuðum, listafólki og nútíma handverksfólki á auðveldan hátt með m.a. kynningum, námskeiðum, smiðjum, útgáfum og greiðu aðgengi að safnkosti.

Kostnaður: 22.000 kr
Staðsetning: Safnasafnið
Kennari: Bryndís Símonardóttir
Hvenær: 19:00 – 21:30 / Miðvikudaga frá 4. febrúar – 25. febrúar

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Þórgunni Þórsdóttur: safnasafnid@gmail.com

Yfirstaðin námskeið

2025 Hedebo saumur
Leiðbeinandi: Bryndís Símonardóttir

2025 Enskur og franskur saumur
Leiðbeinendur: Bryndís Símonardóttir og Jenný Karlsdóttir

2024 Feneyjarsaumur
Leiðbeinendur: Bryndís Símonardóttir og Jenný Karlsdóttir