Hugrekki persónulegrar tjáningar / Courage of Personal Expression
Audie L. Murphy (1925–1971), B. Sóley Pétursdóttir, Bjarni H. Þórarinsson (1947–2025), Björn Sigurðsson (1856–1908), Búri, Eiríkur Annas Guðjónsson (1908–2007), Eirún Sigurðardóttir, Gestur Ebenesarson (1876–1964), Ingvar Ellert Óskarsson (1944–1992), Jóh. Kr. Jóhannesson (1897–1953), Karl Kjerulf Einarsson – Dunganon (1897–1972), Leó Anton Árnason – Ljón Norðursins (1912–1995), Magnús Bjarnason (1839–1893), Níels Hafstein, Peter Michael Micari (1943–2017), Rósa Sigrún Jónsdóttir, Rúrí, Sigga Kling, Sölvi Helgason – Sólon Íslandus (1820–1895), Valdimar Bjarnfreðsson – Vapen (1932–2018), Valdimar Guðmundsson & Vigfús Helgason
Skreytiþörf má hiklaust telja til myndtjáningar, líkaminn eða fatnaðurinn utan á honum er ígildi málningar á striga eða þrívíðra eiginda skúlptúrsins, með sálrænum tónum sem gefa lífinu lit og sjarma. Ljósmynd af gjörningi listamanns er yfirleitt heimild en ljósmynd af einstaklingi sem kemur fram í gervi er lýsing á lífsstíl og sjálfstrausti og það hvernig útkoman kemur öðrum fyrir sjónir hefur tilfinningalegt gildi fyrir viðkomandi.
Sýningin beinir athygli að fólki sem tjáir sig á persónulegan máta með áherslu á það sem gerir það sérstakt, hún útvíkkar skilgreiningar og hafnar fyrirfram mótuðum smekk eða hefð í samfélagi sem aðlagast treglega því sjaldgæfa og ómótstæðilega í fari fólks. Listamenn nota þetta tjáningarform ef það rímar við hugmynd sem þarf að útfæra í rétt efni. Það sem skilur á milli í framsetningu eru úthugsaðar leiðir þeirra sem miðast við einstök verk og upphafning hinna sem hafa ekki faglegan bakgrunn. Með því að stefna þeim saman fæst tækifæri til þess að skoða ólíkar áherslur og mismunandi nálgun.
/
The urge for adorning oneself can decisively be counted as visual expression. The body and the garments on it are the equivalent of paint on canvas with the three-dimensional qualities of the sculpture – with spiritual tones that give life colour and charm. A photograph of an artist’s performance is usually seen as documentation, whereas a photograph of a person appearing in attire is a declaration of a lifestyle and self-confidence and how the result appears to the onlooker has personal value to the subject
The exhibition focuses on people who express themselves in a personal way with an emphasis on what makes them special, it expandsdefinitions and rejects preconceived tastes or traditions in a society that reluctantly adapts to the rare and irresistible in people’s behavior. Artistsuse this form of expression if it rhymes with an idea that needs to be implemented in the right material. What separates them in presentation aretheir well-thought-out ways of focusing on individual works and the exaltation of those who do not have a professional background. Bybringing them together, there is an opportunity to look at different emphases and different approaches
Norðursalir / North Rooms 2026
Sýningargerð / Curator Níels Hafstein
↓
