Gunnar Einarsson



Gunnar Einarsson (1922-2008) frá Streiti bjó á efri árum á Breiðdalsvík, þar tálgaði hann og málaði dýr og fugla og seldi þeim sem vildu. Stofnendur Safnasafnsins keyptu af honum nokkur stykki 2002 og pöntuðu 90 til að eiga upp í sýningu árið eftir. Þessi litlu listaverk eru dæmigerð fyrir útsjónarsemi alþýðulistarfólks, alúð þess og vandvirkni, það er ró yfir þeim og saklaus útgeislun sem vekur upp minngar úr æsku þegar lífið var leikur og ævintýrin gerðust í ríki náttúrunnar.