Skip to content

Frá hafi til himins / From the Sea to the Sky

Þórður G. Valdimarsson – Kiko Korriro (1922-2002)

Sýningin birtir klippimyndir sem listamaðurinn Kiko Korriro vann þegar hann dvaldi við nám í Frakklandi árin 1949–1953. Verkin byggja á tímaritaúrklippum, ljósmyndum og prenti sem raðast í þéttar samsetningar. Sýningin er sett fram sem ferðalag um skala náttúrunnar – frá frumöflum jarðar, til lífs og mannlegra ummerkja og þaðan upp í himingeim og tómið. Saman mynda verkin óð til jarðar þar sem fegurð og ógn fara hönd í hönd.

Þórður G. Valdimarsson hóf ungur að kynna sér undur náttúrunnar. Hann safnaði jurtum og steinum og fór að móta sína eigin myndveröld undir áhrifum fornnorrænnar myndlistar. Allt sitt líf vann hann að teikningum og verkum sem mynda sköpunarsögu heims sem endurspeglar þá spennu sem býr í náttúrunni og manninum. Verk hans komu ekki opinberlega fram fyrr en árið 1983, þegar hann var kominn á sextugsaldur.

/

Austursalur / East Room 2026
Sýningargerð / Curator Þórgunnur Þórsdóttir