Faldbúningur / Festive National Costume
Jenný Karlsdóttir
Faldbúninginn saumaði Jenný Karlsdóttir með leiðsögn Oddnýjar Kristjánsdóttur hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands og er munstrið fengið þaðan, hann er úr svörtu ullarefni, upphlutur, pils treyja. Jenný jurtalitaði garnið og saumaði út í pilsið með kambgarni frá verksmiðjunni Gefjunni á Akureyri. Boðungar treyjunnar eru með perlulögðum flauelsskurði og knipplingum, þeir eru líka á ermum og orkeruð blúnda eftir Bergdísi Brynjarsdóttur, dótturdóttur höfundar, er framan á ermunum. Stokkabeltið fékk Jenný í fermingjargjöf en það er eftir Ásgrím Albertson gullsmið sem starfaði á Akureyri um og upp úr 1950. Ermahnappa, hálsmen og nælur í höfuðbúnað og hálsklút smíðaði Jenný með aðstoð Júlíu Þrastardóttur gullsmiðs sem bjó til tvo stokka í viðbót við beltið. Búningnum fylgir hvít handlína með svartsaumi. Verkið tók nokkur ár og lauk 2015.
/
The costume was made by Karlsdóttir with guidance from Oddný Kristjánsdóttir at the Icelandic Handicrafts Association, which also provided the pattern. Karlsdóttir received the link belt as a confirmation gift, while the cufflinks, necklace and pins for the headdress and scarf were made by Karlsdóttir with the assistance of goldsmith Júlía Þrastardóttir. Crafting the costume took several years and was completed in 2015.
↓
Verslunin / The Store – 2023 & 2024
Umsjón / Curator Magnhildur Sigurðardóttir



